Tisza-flokkurinn
| Flokkur virðingar og frelsis Tisztelet és Szabadság Párt | |
|---|---|
| Forseti | Péter Magyar |
| Varaforseti | |
| Stofnár | 23. október 2020 |
| Höfuðstöðvar | Dobó István utca 16, 3300 Eger |
| Stjórnmálaleg hugmyndafræði |
|
| Einkennislitur | Ljósblár |
| Sæti á þjóðþinginu | ![]() |
| Sæti á Evrópuþinginu | ![]() |
| Vefsíða | magyartisza |
Flokkur virðingar og frelsis (ungverska: Tisztelet és Szabadság Párt), yfirleitt kallaður Tisza-flokkurinn eða TISZA eftir skammstöfun nafns síns á ungversku, er íhaldssamur,[1] miðjusinnaður[4] eða mið-hægrisinnaður,[5] Evrópusinnaður[3] og popúlískur[2] stjórnmálaflokkur í Ungverjalandi.
Flokkurinn var stofnaður árið 2020. Hann jók áhrif sín skyndilega árið 2024 þegar Péter Magyar, fyrrum meðlimur í Fidesz-flokknum, gekk til liðs við hann. Meðlimir úr hreyfingu hans, „Standið upp, Ungverjar“, tóku við flestum embættunum innan flokksins og skipulögðu framboð hans í Evrópuþingskosningunum 2024, þar sem Tisza vann sjö sæti á Evrópuþinginu. Magyar var kjörinn leiðtogi Tisza-flokksins 22. júlí 2024. Zoltán Tarr og Andrea Bujdosó eru þingflokksformenn flokksins á Evrópuþinginu og ungverska þinginu. Flokkurinn vann aukinn meirihluta þingsæta í þingkosningum Ungverjalands árið 2026, sem gerir honum kleift að gera breytingar á stjórnarskrá Ungverjalands eftir 16 ára stjórnartíð Viktors Orbán og Fidesz.
Tisza-flokkurinn er aðili að þinghópi Evrópska þjóðarflokksins á Evrópuþinginu. Flokknum hefur verið lýst sem svo að hann aðhyllist íhaldsstefnu, frjálslynda íhaldsstefnu og lýðhyggju. Flokkurinn er jákvæður gagnvart Evrópusamvinnu og aðhyllist nánara samstarf Ungverjaland við Evrópusambandið og Atlantshafsbandalagið, auk þess sem flokkurinn vill að Ungverjaland taki upp evruna. Flokkurinn segist einnig vilja vinna bug á spillingu og hefur svokallað „mafíuríki“ Viktors Orbán í landinu. Meðal annars hefur flokkurinn talað fyrir því að Ungverjaland gerist aðili að saksóknaraembætti Evrópu og að aðrar ráðstafanir séu gerðar til að tryggja sjálfstæði dómstóla. Tisza-flokkurinn hefur einnig talað fyrir sterkara aðhaldi á ríkisstjórnina, að forseti Ungverjalands verði þjóðkjörinn og að þjóðaratkvæðagreiðsla verði haldin um að takmarka embættissetu forsætisráðherrans við tvö fjögurra ára kjörtímabil.
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- 1 2
- Shankar, Priyanka (13 apríl 2026). „Who is Peter Magyar, Hungary's new leader who trounced Viktor Orban?“. Al Jazeera.
- Treisman, Rachel (13 apríl 2026). „5 things to know about Péter Magyar, Hungary's new prime minister“. NPR.
- Sasipornkarn, Emmy; Janjevic, Darko (13 apríl 2026). „Magyar's Tisza secures two-thirds majority in parliament“. Deutsche Welle.
- „Péter Magyar wins two-thirds parliamentary majority in earthquake Hungary election“. Le Monde. 12 apríl 2026.
- Waterfield, Bruno; Varga, Mátyás (10 apríl 2026). „Fidesz splits emerge as prospect of defeat looms for Orbán“. Euractiv. Budapest.
- 1 2
- Zoltán Ádám (9 apríl 2026). „Beating (Authoritarian) Populism with (Democratic) Populism“. Verfassungsblog.
- Mátyás, Papp Gergely (9. mars 2025). „Milyen szavazókat veszít a gazdasági helyzet miatt a Fidesz, és kiket nyer meg a Tisza? – G7 – Gazdasági sztorik érthetően“ (ungverska). Sótt 24 júní 2025.
- Rácz, András (2024). „A Political Landslide in Hungary Challenges Orbán's Regime and the EU“ (PDF). DGAP. Berlin: Forschungsinstitut der Deutschen Gesellschaft für Auswärtige Politi – gegnum SSOAR.
- 1 2
- Barbara Erling; Gergely Szakacs (10 júní 2024). „EU's eastern members see strong performances by centrist parties“. SWI swissinfo.ch.
- Krisztina Koenen (31. mars 2025). „Peter Magyar's rise is reshaping Hungary's political landscape“. Geopolitical Intelligence Services AG.
- Ilona Gizińska (6 maí 2025). „The year of Péter Magyar: great expectations, great challenges“. Centre for Eastern Studies.
- Baranyai, Artúr; Gyulai, Attila; Papp, Zsófia (14 júlí 2025). „Hungary: Political Developments and Data in 2024: From Scandal to Shake-Up: The Rise of a New Opposition and the Re-Opening of the Political Competition“. European Journal of Political Research (Political Data Yearbook). doi:10.1111/2047-8852.70011.
- ↑
- Kovarek, Daniel (24 febrúar 2025). „Elite defection and opposition realignment in Hungary: Respect and Freedom Party (TISZA) in the 2024 European Parliamentary elections“. East European Politics. 41 (2): 263–276. doi:10.1080/21599165.2025.2468693. ISSN 2159-9165 – gegnum Taylor & Francis.
- „President of EPP Weber invites Hungarian newcomer Tisza into fold“. euronews (enska). 14 júní 2024. Sótt 24 júní 2025.
- „TIZA – Vokskabin“. Vokskabin (ungverska). Sótt 24 júní 2025.
- ↑
- Matteo Dressler; Elena Avramovska; Miriam Candelù; Ognjan Denkovski; Neele Eilers; Michael Jennewein; Tobias Spöri (desember 2024). „From posts to polls. Lessons from the 2024 European Elections on strengthening young people's engagement through effective social media strategies“ (PDF). Policy Study. Foundation for European Progressive Studies (FEPS) and Friedrich Ebert Stiftung: 60. ISBN 9782931233542. „Hungary's centre-right Tisza party also gained traction with critical posts aimed at Fidesz.“
- Manabu Sengoku (19. september 2024). „European Parliament Elections 2024: Eastern European Countries“. The Japan Institute of International Affairs.
- „Hungary“.
- Thorpe, Nick (10 júní 2024). „A night of drama in Europe as EU parliament moves to right“. BBC News. Budapest. Sótt 11 júní 2024.
- „How Orbán's challenger turned the tables“. POLITICO (bresk enska). 5. desember 2024. Sótt 24 júní 2025.
- „Hungarian opposition party has 15-point-lead ahead of Orban's Fidesz, poll says“. Reuters (enska). 18 júní 2025. Sótt 24 júní 2025.


