1960
Útlit
| Árþúsund: | 2. árþúsundið |
|---|---|
| Aldir: | |
| Áratugir: | |
| Ár: |
Árið 1960 (MCMLX í rómverskum tölum) var 60. ár 20. aldar og hlaupár sem hófst á föstudegi samkvæmt gregoríska tímatalinu.
Árið 1960 er gjarnan kallað „ár Afríku“ þar sem 17 Afríkuríki fengu sjálfstæði þetta ár: 14 fyrrum franskar nýlendur, 2 breskar og 1 belgísk.
Atburðir
[breyta | breyta frumkóða]Janúar
[breyta | breyta frumkóða]- 9. janúar - Hafið var að byggja Asvanstífluna í Egyptalandi.
- 22. janúar - Maríanadjúpállinn: Menn komust fyrst niður tæpa 11 kílómetra niður í djúpsjávarsprunguna.
- 24. janúar - Uppreisn hófst gegn nýlenduveldi Frakklands í Alsír.
- 28. janúar - Varðskipið Óðinn var tekið í notkun.
Febrúar
[breyta | breyta frumkóða]- 3. febrúar - Harold Macmillan, forsætisráðherra Bretlands, hélt hina frægu Wind of Change-ræðu í Höfðaborg.
- 18. febrúar - 28. febrúar - Vetrarólympíuleikarnir 1960 voru haldnir í Kaliforníu.
- 29. febrúar - Jarðskjálfti varð í Agadir, Marokkó. 12.000 létust.
Mars
[breyta | breyta frumkóða]- 6. mars - Bandaríkin ákváðu að senda 3.500 hermenn til Víetnam.
- 29. mars - Frakkland vann Eurovision.
Apríl
[breyta | breyta frumkóða]- 19. apríl - SWAPO-flokkurinn var stofnaður í Namibíu.
- 21. apríl - Brasilíuborg var vígð.
Maí
[breyta | breyta frumkóða]- 1. maí - Kalda stríðið: Njósnavélardeilan: Bandarísk njósnavél var skotin niður af Sovétmönnum.
- 3. maí - Fríverslunarsamtök Evrópu (EFTA) voru stofnuð.
- 3. maí - Safn var opnað í húsi Önnu Frank í Amsterdam.
- 11. maí - Ísraelska leyniþjónustan Mossad rændi þýska stríðsglæpamanninum Adolf Eichmann frá Argentínu og fluttu til Ísraels þar sem hann var síðar dæmdur og tekinn af lífi.
- 13. maí - Dhaulagiri, 7. hæsta fjall heims var klifið af Svisslendingum og Austurríkismönnum.
- 22. maí - Jarðskjálfti varð í Valdivia, Chile. Hann var 9,5 að stærð, sá stærsti sem mælst hefur. Þúsundir létust af völdum hans og flóðbylgju.
- 27. maí - Valdarán hersins varð í Tyrklandi án blóðsúthellinga.
Júní
[breyta | breyta frumkóða]- 4. júní - Litla kaffistofan hóf starfsemi við Suðurlandsveg.
- 5. júní - Morðin við Bodomsvatn: Fjöldamorð voru framin í Finnlandi.
- 16. júní - Kvikmyndin Psycho var frumsýnd.
- 19. júní- Fyrsta Keflavíkurgangan var farin til að mótmæla bandarískri herstöð.
- 23. júní - Ungmennafélagið Þór Þorlákshöfn var stofnað í Meitilsbyggingunni í Þorlákshöfn.
- 30. júní - Austur-Kongó fékk sjálfstæði frá Belgíu.
Júlí
[breyta | breyta frumkóða]- 1. júlí - Sómalía fékk sjálfstæði.
- 6. júlí - 10. júlí - Evrópukeppnin í knattspyrnu 1960 var haldin.
- 11. júlí - Skáldsagan, Að drepa hermikráku (To Kill a Mockingbird) eftir bandaríska rithöfundinn Harper Lee kom út.
- 20. júlí - Sirimavo Bandaranaike varð fyrsti kosni kvenleiðtogi heims þegar hún varð forsætisráðherra Ceylon.
Ágúst
[breyta | breyta frumkóða]- Bresk hljómsveit sem áður hafði gengið undir ýmsum nöfnum, tók upp heitið the Beatles (Bítlarnir).
- 11. ágúst - Tjad hlaut sjálfstæði frá Frakklandi.
- 11. ágúst - Bikarkeppni karla í knattspyrnu hófst á leik B-liða KR og Fram.
- 25. ágúst - Sumarólympíuleikarnir 1960 hófust í Róm.
- 30. ágúst - Fæðingarheimili Reykjavíkur hóf starfsemi við Eiríksgötu í Reykjavík.
September
[breyta | breyta frumkóða]- 10. september - Samtök hernámsandstæðinga voru stofnuð.
- 28. september - Evrópukeppni bikarhafa í knattspyrnu hófst formlega.
Október
[breyta | breyta frumkóða]- 1. október - Nígería fékk sjálfstæði frá Bretlandi.
- 2. október - Ísafjarðarflugvöllur var tekinn í notkun.
Nóvember
[breyta | breyta frumkóða]- 8. nóvember - Forsetakosningar í Bandaríkjunum: John F. Kennedy var kjörinn 35. forseti Bandaríkjanna.
- 30. nóvember - Ungmennafélagið Stjarnan var stofnað í Garðahreppi.
Desember
[breyta | breyta frumkóða]- 9. desember - Skyndibitakeðjan Domino's Pizza var stofnuð í Michigan í Bandaríkjunum.
- 13. desember - Tilraun til valdaráns var gerð í Eþíópíu.
Ódagsett
[breyta | breyta frumkóða]- Samtök herskálabúa voru lögð niður í Reykjavík.
- Býlið Bakkasel á Öxnadalsheiði fór í eyði.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- 4. janúar - Michael Stipe, bandarískur söngvari sveitarinnar R.E.M..
- 6. janúar - Atli Harðarson, íslenskur heimspekingur.
- 12. janúar - Dominique Wilkins, bandarískur körfuknattleiksmaður.
- 20. janúar - Will Wright, bandarískur tölvuleikjahönnuður.
- 22. janúar - Pálmi Haraldsson, íslenskur athafnamaður.
- 23. janúar - Max Keiser, bandarískur kvikmyndaleikstjóri.
- 25. janúar - Halldór Þorgeirsson, íslenskur kvikmyndaframleiðandi.
- 27. janúar - Samia Suluhu, tansanísk stjórnmálakona.
- 3. febrúar - Joachim Löw, þýskur knattspyrnumaður.
- 5. febrúar - Iwona Chmielewska, pólskur rithöfundur.
- 8. febrúar - Benigno Aquino III, filippeyskur stjórnmálamaður (d. 2021).
- 15. febrúar - Margeir Pétursson, íslenskur athafnamaður.
- 19. febrúar - Andrew Mountbatten-Windsor, meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar.
- 21. febrúar - Isaac Julien, breskur myndlistarmaður.
- 23. febrúar - Naruhito, Japanskeisari.
- 9. mars - Hideaki Ōmura, japanskur stjórnmálamaður.
- 18. mars - Steinunn Sigurðardóttir, íslenskur fatahönnuður.
- 21. mars - Ayrton Senna, brasilískur akstursíþróttamaður (d. 1994).
- 4. apríl - Hugo Weaving, breskur leikari.
- 5. apríl - Susanne Bier, danskur kvikmyndaleikstjóri.
- 13. apríl - Illugi Jökulsson, íslenskur útvarpsmaður.
- 13. apríl - Rudi Völler, þýskur knattspyrnumaður.
- 15. apríl - Filippus Belgíukonungur.
- 16. apríl - Rafael Benítez, spænskur knattspyrnustjóri.
- 19. apríl - Gustavo Petro, kólumbískur stjórnmálamaður.
- 20. apríl - Miguel Díaz-Canel, kúbverskur stjórnmálamaður.
- 22. apríl - Mart Laar, eistneskur stjórnmálamaður.
- 26. apríl - Roger Andrew Taylor, breskur trommari (Duran Duran).
- 28. apríl- Jón Páll Sigmarsson, íslenskur kraftlyftingamaður (d. 1993).
- 28. apríl - Ian Rankin, skoskur rithöfundur.
- 10. maí - Bono, írskur tónlistarmaður (U2).
- 21. maí - Jeffrey Dahmer, bandarískur raðmorðingi (d. 1994).
- 1. júní - Einar Vilhjálmsson, íslenskur frjálsíþróttamaður.
- 6. júní - Steve Vai, bandarískur gítarleikari.
- 9. júní - Þór Saari, íslenskur hagfræðingur.
- 29. júní - Svein Harald Øygard, norskur hagfræðingur.
- 2. júlí - Karl Garðarsson, íslenskur stjórnmálamaður.
- 11. júlí - Jafar Panahi, íranskur kvikmyndaleikstjóri.
- 14. júlí - Jane Lynch, bandarísk leikkona.
- 20. júlí - Valdimar Leó Friðriksson, íslenskur stjórnmálamaður.
- 22. júlí - Torben Grael, brasilískur siglingamaður.
- 23. júlí - Jon Landau, bandarískur kvikmyndaframleiðandi (d. 2024).
- 30. júlí - Árni Þór Sigurðsson, íslenskur stjórnmálamaður.
- 1. ágúst - Micheál Martin, írskur stjórnmálamaður.
- 4. ágúst - José Luis Rodríguez Zapatero, spænskur stjórnmálamaður.
- 7. ágúst - David Duchovny, bandarískur leikari.
- 10. ágúst - Antonio Banderas, spænskur leikari.
- 17. ágúst - Sean Penn, bandarískur leikari.
- 22. ágúst - Regina Taylor, bandarísk leikkona.
- 25. ágúst - Jonas Gahr Støre, norskur stjórnmálamaður.
- 26. ágúst - Óli Björn Kárason, íslenskur stjórnmálamaður.
- 31. ágúst - Hassan Nasrallah, aðalritari Hizbollah-samtakanna (d. 2024).
- 1. september - Eric Adams, bandarískur stjórnmálamaður.
- 1. september - Brynjar Níelsson, íslenskur stjórnmálamaður.
- 4. september - Elín Hirst, íslenskur fréttastjóri.
- 9. september - Hugh Grant, breskur leikari.
- 9. september - Robert Tchenguiz, íranskur athafnamaður.
- 10. september - Colin Firth, breskur leikari.
- 19. september - Sigurður Einarsson, íslenskur kaupsýslumaður.
- 22. september - Isaac Herzog, ísraelskur stjórnmálamaður.
- 27. september - Guðrún Nordal, íslenskufræðingur.
- 2. október - Joe Sacco, maltverskur myndasöguhöfundur.
- 8. október - Bryndís Hlöðversdóttir, íslensk stjórnmálakona.
- 23. október - Randy Pausch, bandarískur tölvunarfræðingur (d. 2008).
- 27. október - Jeffrey Bostic, barbadoskur stjórnmálamaður.
- 30. október - Diego Maradona, argentínskur knattspyrnumaður (d. 2020).
- 5. nóvember - Tilda Swinton, bresk leikkona.
- 5. nóvember - Ríkharður H. Friðriksson, íslenskur tónlistarmaður.
- 7. nóvember - Þorvaldur Þorsteinsson, íslenskur myndlistarmaður (d. 2013).
- 7. nóvember - Tommy Thayer, bandarískur gítarleikari (KISS).
- 9. nóvember - Andreas Brehme, þýskur knattspyrnumaður (d. 2024).
- 10. nóvember - Neil Gaiman, enskur rithöfundur.
- 13. nóvember - Jón L. Árnason, íslenskur stórmeistari í skák.
- 13. nóvember - Neil Flynn, bandarískur leikari.
- 19. nóvember - Pétur Eggerz, íslenskur leikari.
- 27. nóvember - Júlía Tymosjenko, úkraínskur stjórnmálamaður.
- 30. nóvember - Gary Lineker, enskur knattspyrnumaður.
- 3. desember - Julianne Moore, bandarísk leikkona.
- 8. desember - Sólveig Anspach, íslenskur kvikmyndaleikstjóri (d. 2015).
- 10. desember - Kenneth Branagh, norðurírskur leikari.
- 10. desember - Flosi Sigurðsson, íslenskur körfuknattleiksmaður.
- 12. desember - Vésteinn Hafsteinsson, íslenskur frjálsíþróttamaður.
- 14. desember - Ebrahim Raisi, íranskur stjórnmálamaður (d. 2024).
- 14. desember - Chris Waddle, enskur knattspyrnumaður.
- 15. desember - Irma Boom, hollenskur hönnuður.
- 18. desember - Yoon Suk-yeol, suðurkóreskur stjórnmálamaður.
- 23. desember - Guðmundur Þórður Guðmundsson, íslenskur handknattleiksþjálfari.
- 26. desember - Temuera Morrison, nýsjálenskur leikari.
- 31. desember - Steve Bruce, enskur knattspyrnustjóri.
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 3. janúar - Gunnar Salómonsson, íslenskur aflraunamaður (f. 1907).
- 4. janúar - Albert Camus, franskur rithöfundur (f. 1913).
- 14. janúar - Ralph Chubb, breskt skáld og listamaður (f. 1892).
- 3. febrúar - Fred Buscaglione, ítalskur tónlistarmaður (f. 1921).
- 8. febrúar - John L. Austin, breskur heimspekingur (f. 1911).
- 19. febrúar - H. C. Hansen, danskur stjórnmálamaður (f. 1906).
- 14. mars - Steinunn Jóhannesdóttir, íslensk-bandarískur læknir (f. 1870).
- 24. apríl - Max von Laue, þýskur eðlisfræðingur (f. 1879).
- 12. maí - Evelyn Dunbar, bresk myndlistarkona (f. 1906).
- 30. maí - Borís Pasternak, rússneskur rithöfundur (f. 1890).
- 8. júlí - Holger Cahill, bandarískur listfræðingur (f. 1887).
- 31. júlí - Júlíus Havsteen, íslenskur sýslumaður og þýðandi (f. 1886).
- 5. ágúst - Arthur Meighen, ástralskur stjórnmálamaður (f. 1874).
- 7. september - Tryggvi Magnússon, íslenskur teiknari (f. 1900).
- 15. september - Héctor Castro, úrúgvæskur knattspyrnumaður (f. 1904).
- 27. september - Karl Ísfeld, íslenskur þýðandi (f. 1906).
- 11. október - Vilhjálmur Finsen, íslenskur blaðamaður (f. 1883).
- 16. nóvember - Clark Gable, bandarískur leikari (f. 1901).
- 17. nóvember - Halldór Friðgeir Sigurðsson, íslenskur skipstjóri (f. 1880).