Fara í innihald

Þjóðarbrot

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Fyrir áttunda áratuginn höfðu Korowaimenn í Papúa ekki haft neitt samband við umheiminn. Þeir eru ekki fleiri en 3.000 í dag.

Þjóðarbrot (stundum kallað þjóðflokkur, þjóðernishópur, upprunahópur eða etní[1]) er samfélag fólks með sjálfsmynd sem byggist á sameiginlegum uppruna, ætterni eða menningarlegum bakgrunni; en myndar ekki aðskilið þjóðfélag með eigin valdastofnunum, heldur tilheyrir stærri ríkisheild eða þjóð. Þjóðarbrot sem áður myndaði sérstakt ríki, eða sýnir viðleitni til að stofna ríki, er stundum nefnt ríkislaus þjóð.[2] Meðlimir þjóðarbrots eiga oft sameiginlegan menningararf, hefðir, sögu, ættjörð, tungumál eða mállýsku, trúarbrögð, matarhefðir, fatnað og alþýðumenningu, svo dæmi séu nefnd. Ættbálkur er svipað hugtak, einkum notað um hirðingjasamfélög sem lúta höfðingjaræði; og ættflokkur er gjarnan notað um stóran hóp fólks sem deilir sama ætterni, eins og meðal skoskra hálendinga. Í Afríku hefur hugtakið „örþjóð“ verið notað um þjóðir með sameiginlega menningu og tungumál sem mynduðu sérstök ríki fyrir nýlendutímann.[3]

Stærstu þjóðarbrotin (það stærsta er Hankinverjar) telja milljónir manna, en þau minnstu aðeins nokkra tugi (svo sem margir frumbyggjahópar). Þjóðarbrot geta skipst í smærri hópa sem geta orðið að sjálfstæðum þjóðarbrotum. Þau geta líka sameinast og myndaði alþjóð út frá sameiginlegum einkennum eða pólitískri hugsjón. Með menningarlegri samlögun, aðlögun, málbreytingum, útvenslum, ættleiðingum og trúskiptum getur sjálfsmynd þjóðarbrots tekið breytingum í tímans rás. Þjóðarmyndun er hugtak sem er stundum notað yfir myndun nýs þjóðarbrots.[4]

Í dag er yfirleitt gerður greinarmunur á þjóðarbroti og kynþætti, en hann getur verið umdeildur. Yfirleitt tengist skilgreining á þjóðarbroti menningarvitund ákveðins hóps og byggist á menningarlegum þáttum svo sem sameiginlegu tungumáli og hefðum, meðan hugmyndir um kynþætti tengjast aðallega útlitseinkennum. Fyrir tíma vísindalegrar kynþáttahyggju undir lok 19. aldar voru þessi tvö hugtök þó oft notuð um sama hlut, þar sem margir töldu að menningarleg og félagsleg einkenni hópa tengdust arfgengri aðlögun þeirra að tilteknu umhverfi.[5]

Frá sögulegu sjónarmiði hefur þjóðarbrot stundum tengst þjóðerni. Á Vesturlöndum þróuðust hugtökin „þjóð“ og „þjóðernisstefna“ á 19. öld við ris þjóðríkja.[6][7] Undir nýlendustefnu vestrænna þjóða þróaðist hugtakið „þjóðarbrot“, þar sem hópar fólks frá sömu þjóð sem bjuggu í öðru ríki sameinuðust.

Fjölþjóðaríki myndast þegar ólíkar þjóðir mynda saman eitt ríki, þegar ný landamæri eru teiknuð þvert yfir ættjörð ýmissa þjóða (eins og gerðist á nýlendutímanum), eða vegna þjóðflutninga eftir stofnun ríkis. Dæmi um fjölþjóðaríki af öðru tagi er víða að finna í Afríku þar sem ríki sem voru stofnuð við afnám nýlendustjórna með handahófskenndum landamærum, en líka í Evrópu (t.d. Belgíu og Bretlandi). Meðal dæma um lönd af hinu taginu eru Þýskaland og Holland, sem voru stofnuð utan um mállega og trúarlega sjálfsmynd, en hafa síðar breyst vegna fólksflutninga.

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. ↑ Gunnar Karlsson (2004). „Syrpa um þjóðernisumræðu“. Skírnir. 178 (1): 153–201.
  2. ↑ Chouinard, Stéphanie (2016). „Stateless nations“. Í Karl Cordell; Stefan Wolff (ritstjórar). The Routledge Handbook of Ethnic Conflict. Routledge. bls. 54–66. ISBN 978-1-317-51892-1.
  3. ↑ Chirindo, K. (2018). „Micronations and Postnational Rhetorics“. Women’s Studies in Communication. 41 (4): 383–393. doi:10.1080/07491409.2018.1551686.
  4. ↑ Andrew Gillett (2006). „Ethnogenesis: A Contested Model of Early Medieval Europe“. History Compass. 4 (2): 244. doi:10.1111/j.1478-0542.2006.00311.x.
  5. ↑ Banton, Michael (2007). „Weber on Ethnic Communities: A critique“. Nations and Nationalism. 13 (1): 19–35. doi:10.1111/j.1469-8129.2007.00271.x.
  6. ↑ Kohn H. (1939). „The Nature of Nationalism“. American Political Science Review. 33 (6): 1001–1021. doi:10.2307/1948728.
  7. ↑ Calhoun, C. (1997). „Nationalism and the Contradictions of Modernity“. Berkeley journal of Sociology. 42: 1–30.
  Þessi grein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.