Fara í innihald

Stofn (málfræði)

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Fyrir aðrar merkingar orðsins má sjá aðgreiningarsíðuna.

Stofn kallast sá hluti orðs sem ekki breytist í beygingu.

Stofn nafnorða

[breyta | breyta frumkóða]

Stofn nafnorða má finna með því að sjá hvaða hluti orðsins er eins í öllum föllum. (Stofn sterka nafnorða finnst í þolfalli eintölu) Stofn veikra nafnorða finnst með því að taka sérhljóðann frá nf et

  • stofn orðsins ‚hestur‘ er ‚hest‘
  • stofn orðsins ‚kona‘ er ‚kon‘
  • stofn orðsins ‚tunna er ,tunn‘

Hjá sumum nafnorðum er -r stofnlægt í endingu orðs (t.d. veður > veðri).

Stofn lýsingarorða

[breyta | breyta frumkóða]

Stofn lýsingarorða má finna með því að setja orðið í kvenkyn nefnifall eintölu.[1]

  • (hann er) stór → (hún er) stór
  • (hann er) dapur → (hún er) döpur
  • (hann er) ungur → (hún er) ung

Stofn sagnorða

[breyta | breyta frumkóða]

Algengast er að stofn sagnorða sé fundinn með að fjarlægja -a[2] eða -ja af nafnhættinum, og er það sú aðferð sem kennd er í grunnskólum.[3]

Sumir líta hinsvegar á að veikar sagnir sem beygjast eftir fjórða flokki haldi a-inu þar sem það helst að mestu við beygingu, og stofn orðins að baka sé þar með baka.[4][5]

  • Stofn sagnorðsins „kaupa“ er kaup
  • Stofn sagnorðsins „fara“ er far
  • Stofn sagnorðsins „taka“ er tak
  • Stofn sagnorðsins „vera“ er ver
  • Stofn sagnorðsins „velja“ er vel
  • Stofn sagnorðsins „elska“ er elsk (eða elska)
  • Stofn sagnorðsins „baka“ er bak (eða baka)
  • Stofn sagnorðsins „kalla“ er kall (eða kalla)
  • Stofn sagnorðsins „skrifa“ er skrif (eða skrifa)
  • Stofn sagnorðsins „hrópa“ er hróp (eða hrópa)
  1. ↑ Íslenskukennsla[óvirkur tengill] við Hólabrekkuskóla
  2. ↑ „Málfarsbankinn“. malfar.arnastofnun.is. Sótt 14 ágúst 2020.
  3. ↑ Svanhildur Kr. Sverrisdóttir. „Finnbjörg“ (PDF).
  4. ↑ „Hvernig finn ég stofn sagnorða?“. Vísindavefurinn. Sótt 14 ágúst 2020.
  5. ↑ Esther Erla Jónsdóttir. „Tak sæng þína og gakk“ (PDF).
  Þessi málfræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.