Fara í innihald

Lestur

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Kona að lesa bók

Lestur er sú aðferð að skilja og túlka texta svo hægt sé að skilja orðin sem þar eru prentuð eða skrifuð. Lestur er mikilvæg færni í nútíma samfélagi fyrir samskipti og nýtist í daglegu lífi, þar sem textar geta upplýst fólk um gagnlegar og mikilvægar upplýsingar á borð við heimilsfang á umslagi, vöruupplýsingar á umbúðum eða upplýsingar á skiltum.

Lestur er einnig vinsæl afþreying, og er hægt er að fá lesefni í ýmsum formum í dag; í prentuðu formi (bækur, tímarit, dagblöð og bæklingar), handskrifað (með ritfærum eins og penna eða blýanti á blað) eða á rafrænu formi (á tölvuskjám, í sjónvörpum, farsímum eða lestölvum).

Lestrarfærni

[breyta | breyta frumkóða]

Getan til þess að lesa heitir læsi og er áunninn hæfileiki. Læsi er mismunandi eftir löndum og stafar af misgóðum menntakerfum. Lestur er lykilatriði í máltöku og auðveldar samskipti og hugmyndaskipti. Lestur er flókin aðferð sem krefst góðs skilnings á merkingarfræði, setningafræði og samhengingu sem orð eru í þannig að viðkomandi skilji textann. Sumir eiga erfitt með að lesa og stafa orð en þetta getur verið greint sem lesblinda. Sá sem getur ekki lesið neitt kallast ólæs.

  Þessi grein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.