Hashim Thaçi
| Hashim Thaçi | |
|---|---|
Thaçi árið 2016. | |
| Forseti Kósovó | |
| Í embætti 7. apríl 2016 – 5. nóvember 2020 | |
| Forsætisráðherra | Isa Mustafa Ramush Haradinaj Albin Kurti Avdullah Hoti |
| Forveri | Atifete Jahjaga |
| Eftirmaður | Vjosa Osmani (starfandi) |
| Forsætisráðherra Kósovó | |
| Í embætti 9. janúar 2008 – 9. desember 2014 | |
| Forseti | Fatmir Sejdiu Behgjet Pacolli Atifete Jahjaga |
| Forveri | Agim Çeku |
| Eftirmaður | Isa Mustafa |
| Í embætti 2. apríl 1999 – 1. febrúar 2000 | |
| Forseti | Ibrahim Rugova |
| Forveri | Bujar Bukoshi |
| Eftirmaður | Hann sjálfur[a] |
| Persónulegar upplýsingar | |
| Fæddur | 24. apríl 1968 Srbica, Kósovó, Serbíu, Júgóslavíu |
| Þjóðerni | Kósovó-albanskur |
| Stjórnmálaflokkur |
|
| Maki | Lumnije Thaçi |
| Börn | 1 |
| Háskóli | Pristina-háskóli Háskólinn í Zürich |
| Undirskrift | |
Hashim Thaçi (f. 24. apríl 1968) er kósovóskur stjórnmálamaður og dæmdur stríðsglæpamaður. Hann var fyrsti forsætisráðherra Kósovó (2008–2014) og utanríkisráðherra og aðstoðarforsætisráðherra (2014–2016) í ríkisstjórn Isa Mustafa. Thaçi var forseti Kósovó frá 2016 þar til hann sagði af sér árið 2020. Árið 2026 var Thaçi dæmdur í 25 ára fangelsi af dómstól í Haag vegna stríðsglæpa sem framdir voru í Kósovóstríðinu á tíunda áratugnum.
Æviágrip
[breyta | breyta frumkóða]Hashim Thaçi er næstyngstur átta barna og nam heimspeki og sagnfræði við Pristina-háskóla. Á námsárum sínum var hann leiðtogi í stúdentahreyfingu Albana og var fyrsti forseti nemendasamtakanna við albanska háskólann í Pristina, sem varð til samhliða hinum opinbera háskóla árið 1989. Albanski háskólinn starfaði í mótmælaskyni gegn þeirri lagalegu stöðu sem forseti Serbíu, Slobodan Milošević, hafði veitt Kósovó.
Hashim Thaçi flúði til Sviss og hlaut þar pólitískt hæli. Hann hélt þar áfram námi sínu í sagnfræði og einnig í þjóðarétti við háskólana í Luzern og Zürich. Kennarar hans við háskólann mæltu gegn því að Kósovó veitti afslátt af kröfum sínum. Árið 1993 kynntist Thaçi samfélagi kósovó-albanskra pólitískra útlaga og varð einn af stofnendum Frelsishers Kósovó (UÇK) á svipuðum tíma.[2]
Frelsisher Kósovó
[breyta | breyta frumkóða]Thaçi gegndi mikilvægu hlutverki innan UÇK, þar sem hann hlaut viðurnefnið „Gjarpëri“, eða „snákurinn“. Hann útvegaði hreyfingunni efnahagslega og hernaðarlega aðstoð og sá um að skæruliðaþjálfun sem meðlimir samtakanna hlutu í Albaníu nýttist innan Kósovó. Serbnesk stjórnvöld dæmdu Thaçi að honum fjarstöddum til 22 ára fangelsis fyrir hryðjuverkastarfsemi.
Þann 26. júní 1998 funduðu þeir Thaçi og Bardhyl Mahmuti í Genf með bandaríska erindrekanum Robert Gelbard, fáeinum dögum eftir heimsókn Richards Holbrooke til Kósovó. Frelsisher Kósovó hafði áður átt í leynilegum samskiptum við Bandaríkjamenn.
Hashim Thaçi sneri aftur til Kósovó í nóvember 1998 og hóf þátttöku í skæruhernaðinum, sem hafði staðið yfir í nokkur ár en hafði stigmagnast sumarið 1998. Næsta ár varð hann leiðtogi sendinefndar Kósovó-Albana á Rambouillet-ráðstefnunni. Á vesturlöndum var litið á Thaçi sem málsvara raunsæisstefnu innan UÇK og þátttaka hans í samningaviðræðunum var talin sýna fram á vilja samtakanna til að þiggja sjálfræði Kósovó innan Serbíu. Á sama tíma vann Thaçi að því að efla sína fylkingu innan UÇK og búa svo um hnútana að þegar bráðabirgðastjórn var stofnuð varð hann forsætisráðherra. Ibrahim Rugova, borgaralegum leiðtoga Lýðræðisbandalags Kósovó, geðjaðist lítið að uppgangi Thaçi. Á þessum tíma er talið að Thaçi hafi látið koma nokkrum keppinautum sínum fyrir kattarnef.[3][4]
Eftir sumarið 1999
[breyta | breyta frumkóða]Eftir innrás Atlantshafsbandalagsins tók Sendisveit Sameinuðu þjóðanna í Kósovó (UNMIK), undir forystu Bernards Kouchner, sértaks fulltrúa aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, við stjórn í Kósovó í samræmi við ályktun öryggisráðsins nr. 1244. Thaçi lét því af embætti forsætisráðherra og varð fulltrúi í bráðabirgðastjórn Sameinuðu þjóðanna í Kósovó.
Frelsisher Kósovó var leystur upp í samræmi við ályktun 1244 og skiptist upp í nokkra stjórnmálaflokka, þar á meðal Lýðræðisflokkinn, sem Hashim Thaçi leiddi. Hann var viðstaddur Landsdowne-ráðstefnuna sem haldin var af Friðarstofnun Bandaríkjanna í september 1999, þar sem Bandaríkin reyndu að fá kósovó-albanska stjórnmálamenn til að vinna saman.
Thaçi og Lýðræðisflokkurinn tóku þátt í stofnun fyrstu eiginlegu ríkisstjórnar Kósovó. Flokkur Thaçi tryggði sér forsætisráðherrastólinn en Ibrahim Rugova fékk forsetaembættið og valdi að sitja utan ríkisstjórnarinnar. Eftir næstu kosningar gerði Ibrahim Rugova í staðinn stjórnarsamkomulag við Ramush Haradinaj, sem var formaður minni stjórnmálaflokks sem hafði einnig sprottið upp úr Frelsisher Kósovó en var ósammála Thaçi í ýmsum málefnum.
Deilumál
[breyta | breyta frumkóða]Thaçi hefur margsinnis verið sakaður af ýmsum fjölmiðlum um tengsl við skipulagða glæpastarfsemi. Samkvæmt Washington Times fjármagnaði Thaçi starfsemi UÇK meðal annars með sölu heróíns og kókaíns í Vestur-Evrópu.[5] Stuðningsmenn hans hafa hins vegar fullyrt að fjármununum hafi verið safnað saman af samfélagi Albana í Bandaríkjunum og úr fjárframlögum frá Bandaríkjunum, Bretlandi og Albaníu.
Thaçi var leiðtogi Verndarsveita Kósovó (TMK), sem talið er að hafi kúgað fé frá athafnamönnum til notkunar í kosningaherferðum Thaçi.[6] Þegar Frelsisher Kósovó (UÇK) var leystur upp við lok vopnaðra átaka árið 1999 gengu flestir meðlimir samtakanna í TMK og stjórnmálaleiðtogar UÇK mynduðu saman Lýðræðisflokk Kósovó (PDK). Flokkurinn sat til að byrja með einn við kjötkatlana í landinu og gat beitt völdum sínum til að vernda glæpamenn fyrir ákærum.[7] Hin útbreidda spilling innan PDK stuðlaði að því að flokkurinn tapaði fyrstu frjálsu kosningunum sem haldnar voru í Kósovó árið 2001.
Í skýrslu sem þýska utanríkisleyniþjónustan Bundesnachrichtendienst (BND) vann um Kósovó voru Thaçi, Ramush Haradinaj og stór hópur kósovóskra þingmanna sakaðir um náin tengsl við skipulagða glæpastarfsemi. Í henni var Thaçi vændur um að hafa leitt „glæpanet sem starfaði um allt Kósovó“ frá því á seinni hluta tíunda áratugarins. Thaçi var sagður hafa átt í tengslum við tékkneska og albanska glæpahringi og hafa ráðið atvinnulaunmorðingja að nafni „Afrimi“, sem er sagður hafa staðið á bak við að minnsta kosti ellefu launmorð.[8]
Í skýrslu sem Evrópuráðið gaf út í desember árið 2010 var Thaçi sakaður um tengsl við eiturlyfjasmygl og verslun með líffæri. Í skýrslunni var bent á sex staði í Albaníu þar sem talið var að serbneskir fangar hefðu verið myrtir og líffæri þeirra síðan hirt og seld.[9]
Kosningarnar 2007 og sjálfstæðisyfirlýsing
[breyta | breyta frumkóða]Þingkosningar voru haldnar í Kósovó þann 17. nóvember 2007 þar sem kjörsókn var 40,1 %. Þegar 90% atkvæðanna höfðu verið talin var Lýðræðisflokkurinn lýstur sigurvegari, en flokkurinn hafði fengið um 34 % atkvæða. Thaçi lýsti því yfir að hann myndi stefna að sjálfstæði Kósovó um leið og frestur Sameinuðu þjóðanna til að ljúka friðarviðræðum við Serbíu rynni út, eða 10. desember.
Tveimur dögum síðar brugðust ýmsir utanríkisráðherrar Evrópusambandsríkja við niðurstöðum kosninganna og yfirlýsingu Thaçi og vöruðu hann við því að lýsa yfir sjálfstæði án samráðs við önnur ríki. Jean Asselborn frá Lúxemborg og Carl Bildt frá Svíþjóð hvöttu PDK eindregið til að flana ekki að neinu og Javier Solana, utanríkismálastjóri ESB, lagði áherslu á að vandlegan undirbúning þyrfti áður en Kósovó hlyti formlega sjálfstæði. Jim Murphy, Evrópumálaráðherra Bretlands, varaði við því að sjálfstæði án viðurkenningar umheimsins kynni að einangra Kósovó.
Þann 11. desember fól Fatmir Sejdiu forseti Thaçi að mynda ríkisstjórn sem fyrst. Í kjölfarið gerði PDK stjórnarsáttmála við LDK og Bandalagið fyrir nýtt Kósovó, sem saman áttu 75 af 120 þingsætum í héraðinu. Sáttmálinn leiddi til þess að Thaçi var þann 9. janúar 2008 útnefndur forsætisráðherra með 85 atkvæðum og 22 atkvæðum gegn honum. Hann lýsti strax yfir vilja sínum til að ná fram sjálfstæði Kósovó innan hálfs árs.
Kósovó lýsti yfir sjálfstæði frá Serbíu þann 17. febrúar 2008 og Thaçi varð þar með forsætisráðherra hins nýja ríkis.
Þann 6. júní 2008 reyndi hópur manna að myrða Thaçi á heimili hans í Pristínu. Hann var ekki heima þegar tilræðið var gert og engan sakaði. Tilræðismennirnir létu sig hverfa eftir árásina.[10]
Forsetatíð og ákæra fyrir stríðsglæpi
[breyta | breyta frumkóða]Hashim Thaçi var kjörinn forseti Kósovó árið 2016. Þann 5. nóvember árið 2020 sagði Thaçi af sér sem forseti eftir að sérstakur dómstóll í Haag tók ákvörðun um að ákæra hann fyrir stríðsglæpi. Thaçi sagði afsögnina gegna þeim tilgangi að vernda heilindi kósóvíska ríkisins með því að fyrirbyggja að sitjandi forseti landsins yrði dreginn fyrir dómstól.[11]
Dómur í máli Thaçi féll þann 16. september 2026. Hann var þar sakfelldur fyrir morð, pyntingar, grimmdarlega meðferð og gerræðislegar handtökur sem yfirhershöfðingi Frelsishers Kósovó á tíunda áratugnum. Dómstóllinn taldi Thaçi sekan um morð á 96 pólitískum andstæðingum og meintum samverkamönnum serbneskra öryggissveita í sjálfstæðisbaráttu Kósovó.[12] Thaçi var dæmdur til 25 ára fangelsisvistar.[13]
Neðanmálsgreinar
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Sem fulltrúi í bráðabirgðastjórn Sameinuðu þjóðanna í Kósovó.
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Gazeta Express, "Vitin 1992: Thaçi në konferencë me aktivistët e LDK-së" 2015-11-01
- ↑ „Thacis livsdrøm tæt på at blive realitet“. tv2.dk. 17 febrúar 2008.
- ↑ „Crisis in the Balkans: The Guerilla; Kosovo Rebel Force Will Be Serbian Province's New Power Broker“. The New York Times. 6 júní 1999.
- ↑ „Crisis in the Balkans: The Separatists; Leaders of Kosovo Rebels Tied to Deadly Power Play“. The New York Times. 25 júní 1999.
- ↑ KLA finances fight with heroin sales Terror group is linked to crime network"; Jerry Seper. Washington Times. Washington, D.C.: 1999-05-03. bls. A.1
- ↑ „Kosovo gripped by racketeers“. bbc.co.uk. 5 apríl 2000.
- ↑ „Political violence in run-up to Kosovo vote“. The Christian Science Monitor. 15 ágúst 2000.
- ↑ „German spy affair might have been revenge“. Die Welt Online. 30 nóvember 2008.
- ↑ „Kosovos leder udpeget som narkosmugler og organhandler“. dr.dk. 15. desember 2010.
- ↑ „Armed attack at Kosovo PM's home“. bbc.co.uk. 7 júní 2008. Sótt 18. desember 2010.
- ↑ Atli Ísleifsson (5. nóvember 2020). „Forseti Kósovó ákærður fyrir stríðsglæpi og segir af sér“. Vísir. Sótt 18. september 2026.
- ↑ Ásrún Brynja Ingvarsdóttir (16. september 2026). „Hashim Thaçi dæmdur fyrir stríðsglæpi í Kósovó-stríðinu“. RÚV. Sótt 18. september 2026.
- ↑ „Fyrrum forseti dæmdur í 25 ára fangelsi fyrir stríðsglæpi“. mbl.is. 16. september 2026. Sótt 18. september 2026.