Fara í innihald

Guðmundur Kjærnested

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Guðmundur Hjaltason Halldórsson Kjærnested (f. 29. júní 1923, d. 2. september 2005) var íslenskur skipstjóri Landhelgisgæslunnar og tók þátt í öllum þremur þorskastríðunum gegn Bretum. Hann fór fyrst á sjóinn 17 ára gamall og varð síðar háseti á ýmsum skipum og var stýrimaður á varðskipum Landhelgisgæslunnar 1949–53 og skipstjóri frá 1954–84. Guðmundur stýrði meðal annars varðskipinu Tý og varðskipinu Óðinn. Hann var fyrstur til að beita togvíraklippum gegn breskum togurum árið 1972 [1].

Hann gegndi trúnaðarstörfum eins og: Í trúnaðarráði Stýrimannafélags Íslands (1950–53), formaður Starfsmannafélags Landhelgisgæslunnar (1959–65), ritari Skipstjórafélags Íslands (1962–66) og formaður (1971–75) og forseti Farmanna- og fiskimannasambands Íslands á árunum (1973–75). [2]

Guðmundur hlaut fálkaorðuna árið 1976 og stórriddarakross fálkaorðunnar árið 1984. Einnig hlaut hann Dannebrogsorðuna dönsku og norsku Ólafsorðuna.

Í nóvember 1975 valdi breska blaðið Financial Times Guðmund sem mann vikunnar. [3] .

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. ↑ Þjóðhetja fellur frá Vísir, 3. september 2005
  2. ↑ Guðmundur Kjærnested látinn Mbl.is, 3. september 2005
  3. ↑ Maður vikunnar hjá Financial Times. Morgunblaðið 30. nóvember 1975 Tímarit.is