Fara í innihald

Bræður Ítalíu

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Bræður Ítalíu
Fratelli d'Italia
Forseti Giorgia Meloni
Stofnár 17. desember 2012; fyrir 13 árum (2012-12-17)
Höfuðstöðvar Via della Scrofa 39, Róm
Félagatal 130.000 (2021)[1]
Stjórnmálaleg
hugmyndafræði
Ítölsk þjóðernishyggja, íhaldsstefna, öfgahægristefna
Einkennislitur Blár  
Sæti á fulltrúadeild
Sæti á öldungadeild
Sæti á Evrópuþinginu
Vefsíða fratelli-italia.it

Bræður Ítalíu eða Bræðralag Ítalíu (ítalska: Fratelli d'Italia; FdI) er íhaldssamur og þjóðernissinnaður stjórnmálaflokkur á Ítalíu. Leiðtogi hans er þingkonan Giorgia Meloni, fyrrum ungmennamálaráðherra í fjórðu ríkisstjórn Silvio Berlusconi.

Bræður Ítalíu urðu til með hægriklofningi úr Húsi frelsisins, kosningabandalagi Berlusconi, í desember 2012.[2] Flestir leiðtogar flokksins, þar á meðal Meloni, og einkennismerki hreyfingarinnar (þrílitur eldur),[3] komu úr Ítalska þjóðarbandalaginu, sem hafði runnið inn í Hús frelsisins árið 2009.[4] Þjóðarbandalagið var arftaki Ítölsku samfélagshreyfingarinnar (MSI, 1945–1995), nýfasísks stjórnmálaflokks sem hafði verið stofnaður af fyrrum meðlimum Fasistaflokks Mussolini.[5][6][7]

Hugmyndafræði Bræðra Ítalíu gengur út á róttæka íhaldsstefnu, þjóðernishyggju og andstöðu gegn innflytjendum. Á vettvangi Evrópustjórnmála er flokkurinn aðili að Evrópskum íhaldsmönnum og umbótasinnum, sem Meloni hefur leitt frá september 2020.[8] Að sögn Meloni eru Bræður Ítalíu hlynntir „sambandi evrópskra þjóða“ fremur en evrópsku ríkjasambandi.[9][10]

Bræður Ítalíu unnu um 26 prósent atkvæða í þingkosningum Ítalíu í september 2022 og urðu stærsti flokkurinn á þinginu.[11] Meloni tók því við sem forsætisráðherra Ítalíu, fyrst kvenna, í stjórnarsamstarfi Bræðra Ítalíu við Norðurbandalagið og Áfram Ítalíu.[12]

Gengi í kosningum

[breyta | breyta frumkóða]

Ítalska þingið

[breyta | breyta frumkóða]
Kosningar Leiðtogi Fulltrúadeild Öldungadeild
Atkvæði%Þingsæti+/–SætiAtkvæði%Þingsæti+/–Sæti
2013 Giorgia Meloni 666.0351,9
9 / 630
Nýr flokkur8. 590.0831,9
0 / 315
Nýr flokkur7.
2018 1.429.5504,4
32 / 630
Hækkun 23Hækkun 5. 1.286.6064,3
18 / 315
Hækkun 18Hækkun 5.
2022 7.302.51726,0
119 / 400
Hækkun 87Hækkun 1. 7.167.13626,0
66 / 200
Hækkun 48Hækkun 1.

Evrópuþingið

[breyta | breyta frumkóða]
KosningarLeiðtogiAtkvæði%Þingsæti+/–SætiEvrópuþinghópur
2014 Giorgia Meloni 1.004.0373,7
0 / 73
Nýr flokkur7.–
2019 1.726.1896,4
6 / 76
Hækkun 6Hækkun 5.ECR
2024 6.732.30328,8
24 / 76
Hækkun 18Hækkun 1.

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. ↑ „Sondaggi a picco? Adesso per la Lega anche i tesserati sono al palo. Invece Fratelli d'Italia cresce e rischia di mangiarsi Salvini a breve“. La Notizia (ítalska). 6 apríl 2021. Sótt 15 ágúst 2022.
  2. ↑ Roberts, Hannah (3 ágúst 2022). „Italy confronts its fascist past as the right prepares for power“. Politico Europe. Sótt 11 ágúst 2022.
  3. ↑ Roberts, Hannah (10 ágúst 2022). „I'm not a fascist — I like the Tories, says Italy's far-right leader“. Politico Europe. Sótt 11 ágúst 2022.
  4. ↑ „Fratelli d'Italia riaccende la 'fiamma'. Nel nuovo logo i simboli di Msi e An“ (ítalska). TGcom24. 16 febrúar 2014. Sótt 11 ágúst 2022.
  5. ↑ „Fratelli d'Italia: dova va la destra italiana“ (ítalska). I Mille. 24. mars 2014. Afrit af upprunalegu geymt þann 24. september 2014. Sótt 10 ágúst 2014.
  6. ↑ Carlo, Andrea (20 júní 2022). „Could Giorgia Meloni become Italy's next prime minister?“. Euronews. Sótt 21 júlí 2022.
  7. ↑ Ciucci, Chiara (13 ágúst 2022). „Dall'Msi a Fratelli d'Italia, passando per An e la svolta di Fiuggi: storia della fiamma tricolore nata con Almirante e arrivata fino a Meloni“. Il Fatto Quotidiano (ítalska). Sótt 14 ágúst 2022.
  8. ↑ „Il segnale di Meloni alla stampa estera: 'Nessuna svolta autoritaria, la destra italiana ha consegnato il fascismo alla storia da decenni'“. Il Fatto Quotidiano (ítalska). 10 ágúst 2022. Sótt 14 ágúst 2022.
  9. ↑ „UE, Meloni: Conservatori europei ribadiscono impegno per costruire Europa delle nazioni fondata su un modello confederale“. Giorgia Meloni (ítalska). 6 júlí 2022. Afrit af upprunalegu geymt þann 7 janúar 2023. Sótt 19 júlí 2022.
  10. ↑ „Ue, Meloni: 'Vorrei un'Europa confederale'“ (ítalska). ANSA. 6 júlí 2022. Sótt 15 ágúst 2022.
  11. ↑ Fanndís Birna Logadóttir (26. september 2022). „„Ítalía valdi okkur"“. Vísir. Sótt 27. september 2022.
  12. ↑ Ásrún Brynja Ingvarsdóttir (22. október 2022). „Meloni sver embættiseið“. RÚV. Sótt 23. október 2022.