Fara í innihald

Baltimore

Baltimore
Innri höfnin í Baltimore
Innri höfnin í Baltimore
Baltimore er staðsett í Bandaríkjunum
Baltimore
Baltimore
Staðsetning í Bandaríkjunum
Hnit: 39°17′11″N 76°36′54″V / 39.28639°N 76.61500°V / 39.28639; -76.61500
Land Bandaríkin
Fylki Maryland
SýslaEngin
Mannfjöldi
 (2020)[1]
 • Samtals585.708
TímabeltiUTC−05:00 (EST)
 • SumartímiUTC−04:00 (EDT)
Vefsíðawww.baltimorecity.gov Breyta á Wikidata

Baltimore er stærsta borg Marylandríkis í Bandaríkjunum. Hún liggur miðsvæðis í fylkinu, milli Patapsco árinnar og Chesapeake flóans. Borgarhlutinn er oftast kallaður Baltimore-borg sem greinir hana frá aðliggjandi Baltimore-sýslu.

Íbúar borgarinnar sjálfrar voru 585.708 árið 2020 en á Baltimore-Washington stórborgarsvæðinu svonefnda eru taldar búa tæplega tíu milljónir manna. Borgin er ein mikilvægasta hafnarborg Bandaríkjanna og hefur verið það síðan á 19. öld þegar næstflestir innflytjendur til Bandaríkjanna komu um hana. Þá var hún einnig næststærsta borg landsins.

Baltimore byrjaði að byggjast 1729. Baltimore er stærsta hafnarsvæði mið-Bandaríkjanna og er nær mörkuðum miðvesturríkjanna en nokkur önnur hafnarborg á austurströndinni. [2] Inner harbor svæði borgarinnar var eitt sinn ein helsta gátt innflytjenda til Bandaríkjanna og stór iðnaðarborg. [3] Eftir að iðnaður lagðist mikið til niður í borginni þá breyttist efnahagur borgarinnar yfir í meiri þjónustu en iðnað.

Íbúar borgarinnar sjálfrar voru árið 2010 620.961 en á Baltimore-Washington stórborgarsvæðinu svonefnda eru taldar búa um 8,4 milljónir manna.[4]. Borgin er ein mikilvægasta hafnarborg Bandaríkjanna og hefur verið það síðan á 19. öld þegar næstflestir innflytjendur til Bandaríkjanna komu um hana. Íbúafjöldi hefur þó dregist saman um þriðjung síðan 1950 er íbúafjöld náði hámarki sínu. Á Baltimore svæðinu búa um 2,7 milljónir manna samkvæmt opinberum tölum árið 2010. Baltimore er 21. stærsta borg landsins.[5]

Borgin er nefnd eftir Lord Baltimore, meðlimi á írsku lávarðadeildinni og upphafsmanni Maryland nýlendunnar. Baltimore er ensk útgáfa írska-gelíska frasans Baile an Tí Mhóir, sem þýðir ‚Borg hins stóra húss‘[6]. Ekki skal rugla borgarnafninu saman við Baltimore, í Cork sýslu á Írlandi sem er nefnd Dún na Séad.[7]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. ↑ „US Census – Baltimore, Maryland“. United States Census Bureau. Sótt 9. september 2025.
  2. ↑ Hughes, Joseph R. „Inland port gives Baltimore strategic shipping advantages“. Washington Examiner. Sótt 23. júní 2011.
  3. ↑ „Baltimore Heritage Area“. Maryland Historical Trust. 11. febrúar 2011. Sótt 30. desember 2011.
  4. ↑ „Annual Estimates of the Population of Combined Statistical Areas: April 1, 2000 to July 1, 2009“ (CSV). 2009 Population Estimates. United States Census Bureau, Population Division. mars 2010. Sótt 31. mars 2010.
  5. ↑ „Metro Area Factsheet: Baltimore, Maryland PMSA“. FAIR US. Sótt 31. desember 2011.
  6. ↑ „Placenames“. n-ireland.co.uk. Afrit af upprunalegu geymt þann 30. apríl 2007. Sótt 29. mars 2007.
  7. ↑ „Placenames Database of Ireland“. Sótt 4. apríl 2009.
  Þessi Bandaríkja-tengda grein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.