Fara í innihald

Flokkunarkerfi lífvera

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
(Endurbeint frá Vísindaleg flokkun)

Flokkunarkerfi lífvera er flokkun sem líffræðingar beita til að flokka lifandi og útdauðar lífverur. Nútímaflokkun á rætur sínar að rekja til verka Carl von Linné sem flokkaði lífverur samkvæmt sameiginlegum útlitseinkennum. Carl von Linné var grasafræðingur og byggði flokkun sína á plöntum einkum á fjölda fræfla. Hann setti fyrstur fram tvínafnakerfið.[1][2] Flokkunarkerfið byggist á stigskiptri flokkun þannig að skyldar tegundir mynda saman ættkvíslir, skyldar ættkvíslir mynda ættir o.s.frv. Þessi flokkun hefur verið endurbætt síðan Charles Darwin kom fram með þróunarkenningu sína.

Meðfylgjandi er dæmi um venjulega flokkun á fimm tegundum en þær eru: ávaxtafluga (Drosophila melanogaster) sem er algeng í erfðafræðirannsóknastofum, maður (Homo sapiens), gráerta (Pisum sativum) sem Gregor Mendel notaði við uppgötvanir sínar í erfðafræði, berserkjasveppur (Amanita muscaria) og saurbaktería (Escherichia coli). Flokkarnir eru feitletraðir. Einnig koma fram undirflokkar.

Flokkunarkerfið notar latnesk heiti samkvæmt gamalli hefð. Sum þessara heita hafa fengið samsvarandi íslensk heiti, en alls ekki öll. Því er íslenska heitið haft í sviga þar sem það er til.

Flokkur Ávaxtafluga Maður Gráerta Berserkjasveppur Saurbaktería
Lén Eukaryota (heilkjörnungar) Eukaryota (heilkjörnungar) Eukaryota (heilkjörnungar) Eukaryota (heilkjörnungar) Bacteria (gerlar)
Ríki Animalia (dýraríkið) Animalia (dýraríkið) Plantae (jurtaríkið) Fungi (svepparíkið) Pseudomonadati
Fylking Arthropoda (liðdýr) Chordata (seildýr) Tracheophyta (æðplöntur) Basidiomycota (kólfsveppir) Pseudomonadota
Undirfylking Hexapoda (sexfætlur) Vertebrata (hryggdýr) Angiospermae (dulfrævingar) Agaricomycotina (kempuundirfylking)
Flokkur Insecta (skordýr) Mammalia (spendýr) Eudicota (tvíkímblöðungar) Agaricomycetes (kempuflokkur) Gammaproteobacteria
Undirflokkur Pterygota (vængberar) Placentalia (legkökuspendýr) Rosidae Agaricomycetidae
Ættbálkur Diptera (flugur) Primates (fremdardýr) Fabales (belgjurtabálkur) Agaricales (kempubálkur) Enterobacteria (iðragerlar)
Undirættbálkur Brachycera Haplorhini (apar)
Ætt Drosophilidae (glerflugur) Hominidae (mannætt) Fabaceae (ertublómaætt) Amanitaceae (serksætt) Enterobacteriaceae (þarmagerlar)
Undirætt Drosophilinae Homininae Faboideae
Ættkvísl Drosophila Homo (menn) Pisum (ertur) Amanita (reifasveppir) Escherichia
Tegundir Drosophila melanogaster Homo sapiens Pisum sativum Amanita muscaria Escherichia coli

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. ↑ Sigurður Arnarson (7. desember 2025). „Flokkunarkerfi“. Kjarnaskógur.
  2. ↑ „Nafngiftir jurta og dýra“. Lesbók Morgunblaðsins. 5. mars 1961. bls. 130.
  Þessi líffræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.